dabs.is

Af söng- og söngvakeppnum

6. February 2010 22:39

Myndin tengist efni pistilsins, en á afar óbeinan og lúmskan hátt.

Þegar ég var ungur og vitlaus og að klára 2. árið mitt í FB ákvað ég að taka þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna. Var reyndar eitthvað smeykur við að taka þátt einn, og því fékk ég þá félaga Óskar og Stebba til að mynda með mér sönghópinn Simon og Garfield. En kannski var sá hópur bara myndaður í hausnum á mér, í öllu falli endaði það þannig að ég var eini meðlimur sönghópsins.

Fyrsta æfingin fór fram í einhverju æfingahúsnæði í Garðabænum. Hljómsveitin Sjöund frá Vestmannaeyjum spilaði undir, og á þeim tíma var ég ekki búinn að venja mig á að vera of seinn og mætti því aðeins snemma, kannski ekki annað mögulegt verandi á strætó. Þeir félagar hins vegar voru greinilega búnir að taka upp stundvísi poppara, svo ég þurfti að bíða eitthvað úti í kuldanum áður en þeir mættu. Þar sem ég stóð þarna inni í myrku húsasundi í skuggalegu hverfi í Garðabænum í myrkri og kulda, hríðskjálfandi, sé ég að í hlað rennir bíll. Í honum sat hugguleg dökkhærð stúlka sem spurði hvort ég væri að fara að mæta á æfingu fyrir söngkeppnina, og bauð mér að bíða í bílnum þangað til hljómsveitin mætti á svæðið. Sem ég og þáði með þökkum.

Svo mætir hljómsveitin skömmu síðar, og æfingin gat hafist. Mig minnir að ég hafi byrjað (en það er þó ekki víst, enda er þetta frá þeim tíma þegar ég var í ruglinu), og mér tókst einhvernveginn að bögglast í gegnum lagið sem ég söng (lagið Allt með Nýdönsk) en með herkjum þó. Svo var komið að stúlkunni sem var svo elskuleg að bjóða mér að bíða í bílnum með sér.

Ég get alveg lofað því að þessum 3-4 mínútum gleymi ég aldrei. Frá því að gítarleikarinn byrjaði að plokka Cmoll hljóminn, þegar fyrsta línan hljómaði: "Allt er svo eymdarlegt án þín hér....", og þegar hin hljóðfærin komu svo inn. Allt hjálpaðist að við að gera þetta vel heppnað augnablik. Bæði var að Sjöund samanstóð af ákaflega vel spilandi hljóðfæraleikurum, hljómborðsleikarinn hafði til umráða ágætis eftirlíkingu af Hammond orgeli, og það sem mestu máli skiptir: söngkonan var góð. Mjög góð. Hreinlega alveg frábær. Lagið heitir "Án þín", var upphaflega flutt af Trúbrot (í þessari útsetningu) og varð mikið spilað næstu misserin, en ég var að heyra það í fyrsta skipti þarna, sem var ekki til að minnka áhrifin.

Söngkonan heitir Hera Björk, hún vann að sjálfsögðu keppnina í FB þetta árið, og það var svo bara hending að hún skyldi ekki vinna aðalkeppnina sömuleiðis.

Og svo var hún að vinna undankeppni Eurovision hér heima núna í kvöld.

Ef vel gengur hjá henni úti í Noregi í vor, þá gæti ég alveg trúað henni til að vinna aðalkeppnina. Þá fyrst þarf nú að fara að tala um niðurskurð hjá RÚV og ríkinu.