dabs.is

I'll be back

9. September 2009 18:30

Þessi mynd tengist efni pistilsins lítið sem ekkert.

Þar sem nú stendur yfir lokaprófið í áfanganum sem ég var að ljúka við að kenna er tilvalið að byrja aðeins að blogga aftur. 

Mörgum hefur orðið tíðrætt um verðtryggingu lána, afskriftir og annað því tengt. Nú ætla ég ekki að taka afstöðu til þess hvort eigi að afskrifa hluta þeirra lána sem hækkað hafa, hvort það sé sanngjarnt gagnvart þeim sem ekki hafa skuldað, nú eða gagnvart þeim sem lifðu spart annarsvegar og þeim sem tóku þátt í gróðærinu hins vegar. Sjálfsagt er ekki til neitt einfalt svar við því hvað sé sanngjarnt eða skynsamt í þeim efnum.

En ég hef verið að velta fyrir mér með útreikningana á vísitölunni sem liggur að baki verðtryggðum lánum. Segjum að það sé Hagstofan sem sjái um að reikna út þessar tölur (kannski er það einhver allt annar aðili, skiptir ekki öllu máli). Og segjum að um áramótin 2007/2008 hafi þar verið framkvæmt uppfærsla á hugbúnaðinum sem sér um að reikna þetta út, nema hvað að í hugbúnaðinum hafi reynst galli sem gerði það að verkum að vísitalan var reiknuð 30% of hátt. Hins vegar tók enginn eftir þessu á þeim tíma, en svo þegar menn fóru fyrir slysni að reikna vísitöluna upp á nýtt í höndunum hafi menn rekið augun í að útreikningarnir voru gallaðir.

Hvað myndu menn gera? Láta sem ekkert sé? Eða yrði vísitalan færð til baka?

Og er þetta eitthvað svipað og hefur verið að gerast hjá okkur síðustu mánuði og misseri?

Verðbólga og vísitala eru jú bara mannanna verk, og það hvernig við reiknum þessa hluti er algjörlega skilgreiningaratriði. Ég veit ekki til þess að það sé nokkuð heilagt í þeim efnum.