29. November 2009 14:56
Mynd af traktor, svona fyrir þá sem hafa aldrei séð þessi fyrirbæri.
Nú er iðnaðarráðuneytið að vinna að áætlun um orkuskipti, þ.e. að skipta úr innfluttum orkugjöfum fyrir bíla og önnur farartæki yfir í innlenda orkugjafa. Ég hef ekki séð þessa áætlun, og veit ekki hvort hún er einusinni tilbúin, en ég fagna því að sjálfsögðu gríðarlega að þessi vinna sé í gangi.
Mér hefur þó alltaf þótt merkilegt þegar fólk hefur verið að tjá sig um þessi mál, og haldið því fram að við ættum að skipta yfir í rafmagnsbíla. "In theory" hljómar það mjög lógískt, en í praxís myndum við semsagt þurfa að skipta út 181.000 bensínbílum (og þá eru dísilbílarnir ótaldir). Í ljósi þess hve hratt rafmagnsbílar hafa verið innleiddir hingað til (þeir eru innan við 10 núna á landinu), og hversu lítið verður væntanlega flutt inn af hvers konar bílum á næstunni (við erum jú blönk), þá er fyrirséð að þessi endurnýjun muni taka langan tíma, mun lengri tíma en ég tel að við höfum. Persónulega vildi ég frekar sjá áætlun sem gengi út á að ráðast að þessu bensínbílafjalli úr nokkrum áttum: hluta flotans yrði skipt út fyrir rafmagnsbíla, hluta flotans fyrir metanbíla, hluta flotans yrði breytt þannig að þeir gangi á alkóhóli, og afgangurinn myndi ganga á öðrum orkugjöfum (samblandi af bensíni og alkóhóli, vetni mögulega, bílar knúnir þrýstilofti o.s.frv.).
En ef menn vilja virkilega fara út í að breyta farartækjum þannig að þau gangi fyrir rafmagni er tvímælalaust eitt sem ætti að einbeita sér að: traktorar. Þeir ferðast sjaldnast mjög langt í burtu frá aðsetri sínu og því þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af langdrægi þeirra, í langflestum tilfellum gætu þeir bara keyrt heim þegar hleðslan er að verða búin án þess að þar verði um langa vegalengd að ræða. Best væri líklega ef þeim yrði breytt þannig að í þá yrðu settar útskiptanlegar rafhlöður, þ.e. pakki sem væri hægt með einföldum hætti að skipta út og setja nýjan fullhlaðinn í staðinn. Þar að auki eru rafmótorar mun öflugri en sprengihreyflar við lítinn snúning sem hentar vel. Og fjöldinn? Samkvæmt Umferðarstofu eru um 11.500 traktorar skráðir á landinu öllu - langflestir knúðir dísilolíu - og 11.500 er jú mun viðráðanlegri tala heldur en 181.000.
Svona traktorar eru að sjálfsögðu til nú þegar, en virðast að mestu vera í minni kantinum. Það væri áhugavert ef svona tilraun yrði gerð, kannski ætti þetta að vera næsta verkefni hjá nemendum HR?