1. October 2009 23:21
Það kann að hljóma undarlega svona á þessum síðustu og verstu tímum, en ég er mjög bjartsýnn á framtíð Íslands.
(Þ.e. að því gefnu að við hættum að berast á banaspjótum eins og upp sé runnin Sturlungaöld hin síðari).
Ástæðan er þessi tafla (sem ég fann hér):
en hún sýnir hvaða lönd eru minnst háð jarðefnaeldsneyti. Maður vissi það svosem að við værum mun betur stödd hvað það varðar heldur en margar aðrar þjóðir, en að við værum á toppnum hafði ég ekki gert mér grein fyrir. Það þýðir að af öllum þjóðum heims erum við best í stakk búin til að takast á við þetta vandamál. Ég sannfærist æ meir um að olíutoppurinn (Peak Oil) muni hafa mikil áhrif til hins verra á lífskjör fólks í framtíðinni, og þau lönd sem ná að verða óháð olíu (og öðrum jarðefnaorkugjöfum eins og kolum og gasi) muni koma best út þegar það fer virkilega að hafa áhrif.
Jafnframt er ég sannfærður um að olían og kreppan séu nátengdar, hækkandi olíuverð hafi þau áhrif að stuðla að kreppu, kreppa stuðli að lækkandi olíuverði, það stuðli að efnahagsbata sem stuðli að hækkandi olíuverði sem svo aftur stuðli að kreppu etc. Mér finnst því mjög líklegt að efnahagsástandið á komandi árum verði sérkennileg rússíbanareið og að það sé í raun engin leið að spá fyrir um framvindu mála með nokkurri vissu.
Mér finnst líka að við ættum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að lækka þessi 27 prósent eins mikið niður og hægt er, helst niður í 0 þó það sé kannski óskhyggja. Þar tel ég að við ættum að byrja á bílaflotanum, þó svo að það sé reyndar ekki stærsti bitinn. Þeir 180 þúsund bensínknúnu bílar sem við eigum eyða tæplega 160 þúsund tonnum af bensíni á ári (151 þúsund tonn árið 2008, meira árin á undan), en aðal eyðslan á jarðefnaeldsneyti er hjá fiskiskipaflotanum. Ég tel þó best að byrja þar því það er vel viðráðanlegt. Ólíkt því sem svo mikið er haldið á lofti tel ég samt ekki að lausnin felist í rafbílavæðingu - ég sé ekki hvernig við eigum að skipta út bílaflota upp á 180 þúsund yfir í rafbíla nema með gríðarlegum tilkostnaði, og kostnaðurinn við það myndi einfaldlega þurrka út allan efnahagslegan ávinning af því að þurfa ekki að kaupa allt þetta bensín. Ónei, við ættum frekar að breyta bílaflotanum þannig að hann gangi á alkóhóli eins og ég hef áður lýst. Að sjálfsögðu ætti svo að styða við bakið á þeim sem kjósa að fara út í raf- eða metanbíla, en ég sé það bara ekki sem einhverja heildarlausn, miklu frekar sem hluta úr púslinu.